Bravo Slavo

Sunday, April 16, 2006

Í dag er páskadagur...
Ég búin að borða allt nammið innan úr páskaegginu mínu og langar alls ekki að innbyrða allt súkkulaðið sem er eggið sjálft... :S
Ég er ekkert búin að læra í fríinu og er með smoking samviskubit vegna þess... :/
Stærstu heimadæmi geimsins bíða...
Stærðfræðipróf þann 19. & lokapróf í lífeðlisfræði þann 26... Djö...

Niðurtalning til útskriftar: 41 dagur...
Niðurtalning til prófloka: 26 dagar...

Spurning hvort þetta ætti að vera öfugt... Þar sem að próflokin eru á undan and all... :P

Hilsen,
Slavo

Monday, April 10, 2006

Ég er komin í páskafrí...
Hið langþráða páskafrí er loksins skollið á, og þá gerist það sama og í öllum öðrum fríum, ég veit bara alls ekki hvað ég á af mér að gera... :S
Ætlaði að læra, þá sérstaklega lífeðlisfræði (þarf að leggja svona trilljón vöðvanöfn á minnið), en hver með fullu viti lærir í fríinu sínu...?? Maður er alltaf lærandi...
Svo sagðist ég ætla að mæta í vinnu á morgun og hinn... Mig langar ekkert til þess... Það er leiðinlegt í vinnunni... :(
Mig langar bara til að æfa... En ÍR-húsið er lokað um páskana... Þannig að maður verður að takmarka sig við hlaup og sund... Sem er í sjálfu sér ágætt, i guess... :D

Árshátíð ÍR var á laugardaginn... :D Það var æði pæði...
Það er alveg merkilegt hvað það er skemmtilegt fólk að æfa taekwondo hjá ÍR... Eða taekwondo yfir höfuð... Allir þeir úglendingar sem voru á æfingabúðunum í Danmörku núna síðast, eða í Noregi síðasta sumar og allir þeir sem hafa komið hingað til lands eru alveg yndislegt fólk... :D Spurning hvort það sé íþróttin sem dragi að sér yndislega fólkið eða hvort íþróttin breyti manni til hins betra...?? Eða kannski er það bara bæði betra...??

Síðan er stefnan enn og aftur tekin á Danmörku 19. og 20. maí... Þá er Danska opna meistaramótið í tækni haldið í Kolding... :D
Gaman gaman...

Hilsen,
Slavo

Thursday, April 06, 2006

Fór til Danmerkur...
Skemmti mér vel í Danmörku...
Æfði mikið í Danmörku...
Var hundveik í Danmörku...
Er komin heim frá Danmörku...
Ég væri allsvakalega til í að vera alltaf í æfingabúðum... Það er æðislegt... :P

Niðurtalning til útskriftar: 51 dagur...!!
Niðurtalning til prófloka: 36 dagar...!!

Þetta er allt að koma... :P