Bravo Slavo

Monday, July 16, 2007

* Ég fékk símtal frá nemendaskrá Háskóla Íslands í dag. Ég er hérmeð skráð í lífefnafræði í haust... (þ.e ef að deildin vill taka við mér. Vantar 6 einingar uppá inntökuskilyrðin og náði ekki í skottið á neinum á skrifstofu raungreinadeildar fyrir sumarfrí, þannig að ég þarf að bíða til 1.ágúst...)
* Svar frá NTNU á að berast á föstudag...!!!
* Obbosí...

Saturday, July 07, 2007

* Niðurstöður eru komnar í hús... Og þær voru mér ekki í haginn... :S Mér gekk actually verr núna en í fyrra... Spes...
* Það kom svo á daginn í vikunni að umsóknin mín til NTNU var ekki fullgerð... Það vantaði einverja stimpla sem ekki er hægt að fá á íslandi... :S Lét þá bara stimpla allt draslið í Norge og sendi það til þeirra... En það var að vísu nokkrum dögum eftir að fresturinn rann út... Þannig að það hengur allt í lausu lofti... :( Fæ að vita hvort þeir taki við mér þann 20. júlí...
* Ef allt bregst þá treð ég mér með Guggz og Kötlu í lífefnafræðina og sæki svo um út um allar trissur fyrir næsta haust... Ég ætla samt ALDREI aftur í þessi inntökupróf... Það er greinilegt að mér er ekki ætlað í læknisfræði í HÍ... ;)
* Þannig að skólaárið 2007/2008 verð ég í Noregi eller Danmörku eller... Ungverjalandi kanske...?? ;P

Fæ langþráða heimsókn á morgun... Þrefalt Húrra..!!