Ég lendi alltaf í því að mér dettur eitthvað í hug til að blogga um en svo þegar ég kemst á netið er það gjörsamlega gufað upp...
Þessvegna kemur hér eitt updeits-blogg:
- Ég er komin í ný valfög. Ég hélt áfram með kóreskuna og hwalbup en bætti við akupressur og aromaterapi. Akupressur er svakalega spennandi og aromaterapi er svooooooooo mikið brill... Þá mæti ég í tíma og læt nudda mér uppúr olíu í klukkutíma (ókosturinn er hinsvegar að maður þarf að skipta og nudda partnerinn sinn líka)...
- Um daginn var hippakveld.... Ég á engin hippaföt þannig að þetta var það sem ég gat klesst saman fyrir kvöldið:
- Við erum búin að fá skólapeysur... Mín er í allsvakalega flottum grænum lit... Ég var hinsvegar svo mikill kjáni að panta hana í small... Hún passar mér alveg fullkomlega... Ég er lítið fyrir að ganga í fötum sem passa mér fullkomlega, mér finnst það almennt óþægilegt. :S
- Það er komin dagsetning á Kóreuferðina. 13.mars - 1.apríl..!! :D
- 2. apríl kem ég heim í páskafrí, 10. apríl fer ég út aftur... Og þá eru bara 4 vikur eftir af skólanum... (og mér skilst að svona 2 vikur af því séu þrif :S)
- 11. maí kem ég svo heim for good...
Hilsen,
Slavo
4 Comments:
Mikið ertu orðin síðhærð...
Killer bootsin fullkomna alveg þetta hippa look
Hah.. þetta er alveg mögnuð mynd.
Hej Hulda ofur mega duglega drottning noregs!! Bestu kveðjur rá okkur!...ýkt mega sega drive kúl búningur:)
Alltaf velkomin til okkar Hulda ef þú átt leið hjá:)
Óskar og HIldur af Aarhus
Post a Comment
<< Home