Bravo Slavo

Tuesday, August 15, 2006

Tvær vikur...!
Tvær vikur...!
Tvær vikur...!

Ef það hefur farið framhjá einhverjum, þá fer ég til Noregs eftir tvær vikur...
Vildi bara minna á það...
Þetta er sá tími sem þið hafið til að koma öllum kveðjugjöfunum til mín... :D
Annars er ég nýkomin frá Englandi, fór með fjölskyldunni í siglingu um einhver síki um Stoke-on-Trent...
Mér fannst ekki gaman...
Ég var sjóveik allan tímann og svaf að meðaltali um 15 tíma á dag... :S

Ég fékk hinsvegar að fara til Liverpool..!!!!
Og tvisvar meiraðsegja... :P
Fórum í fyrsta skiptið laugardaginn eftir að við fórum út og fórum þá í skoðunarferð um Anfield...
Fengum að fara inní búningsklefa og skoða treyjur leikmanna og svo fengum við að sitja á þeim stað í stúkunni sem þjálfarar og mikilmenni sitja... :P
Það var töff..!

Við máttum hinsvegar ekki fara út á völlinn, það er víst hægt að kæra mann ef maður gerir það...
Þeir geta líka kært mann fyrir að fara of nálægt vellinum án réttmætrar fylgdar...
Creizíness...

Svoooooo gaman í Liverpool...
Rákumst líka á tvær kringlur þar og þá var verslað... :D
Fékk flog í Virgin megastore og keypti ógisslega mikið af dvd myndum... (tókst að gleyma 3 þeirra í bátnum, ein af þeim er btw snilldarmyndin Zoolander..!)

Fékk loooooksins diska með The Cocteau Twins :)
OG gleymdi þeim í bátnum..!! :S
Ég tel hæpið að ég fái þetta dót aftur... :'(
Ekki gaman, ekki gaman...

SHRN,
Slavo

3 Comments:

At 5:45 PM, Anonymous Anonymous said...

Er ég sú eina sem veit ekki hvað SHRN þýðir? Er ég rosa saklaus og vitlaus?

 
At 1:49 PM, Blogger Hulda R. Jónsdóttir said...

hehe...
Ef þú varst ekki með mér í Noregi og/eða hefur ekki séð myndina Zoolander þá veistu ekki hvað SHRN er... :P

Horfðu á myndina og leitaðu að frasa sem inniheldur orð sem byrja á þessum stöfum... :)

Hilsen,
Slavo

(Hint: Mugatu segir þetta...)

 
At 5:03 PM, Anonymous Anonymous said...

Society for Human Resource Management?
Google ekki að standa sig...

ahh, þarna kom það *tssss*
;)

 

Post a Comment

<< Home